26. júlí 2004
Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum. Einu breytingarnar að þessu sinni eru í III. kafla vaxtatilkynningarinnar þar sem dráttarvextir af peningakröfum í bandaríkjadollurum hækka úr 5,0% í 5,5%. Aðrir þættir vaxtatilkynningarinnar breytast ekki frá fyrri mánuði.