logo-for-printing

28. febrúar 2024

Fjármálaeftirlit 2024

Ritið Fjármálaeftirlit 2024 hefur verið birt á vef Seðlabankans. Með árlegri útgáfu Fjármálaeftirlits leitast Seðlabankinn við að tryggja viðeigandi gagnsæi um störf og áherslur bankans á sviði fjármálaeftirlits.

Í ritinu er skýrt frá því hvernig bankinn vann á árinu 2023 að þeim verkefnum sem fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands eru falin í lögum auk þess sem upplýst er um helstu áherslur í fjármálaeftirliti í ár. Ritið er einnig gefið út á ensku undir heitinu Financial Supervision.

Sjá hér: Fjármálaeftirlit 2024   


Til baka