logo-for-printing

19. janúar 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 12/2023 dagsettri 19. desember sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 29. febrúar 2024.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 29. febrúar 2024:

  • Vextir óverðtryggðra útlána 9,60% - (óbreyttir)
  • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
  • Vextir af skaðabótakröfum 6,40% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 01/2024

Til baka