logo-for-printing

01. desember 2023

Afgangur á viðskiptajöfnuði 61,8 ma.kr. á þriðja fjórðungi 2023 – hrein staða við útlönd jákvæð um 31,2% af VLF

Seðlar

Á þriðja ársfjórðungi 2023 var 61,8 ma.kr. afgangur á viðskiptajöfnuði við útlönd. Það er 60,8 ma.kr. betri niðurstaða en ársfjórðunginn á undan og 39,7 ma.kr. betri en á sama fjórðungi árið 2022. Í lok ársfjórðungsins var hrein staða við útlönd jákvæð um 1.272 ma.kr. eða 31,2% af vergri landsframleiðslu (VLF) og batnaði um 145 ma.kr. eða 3,6% af VLF.  Þetta kemur fram í nýbirtum upplýsingum á vef Seðlabanka Íslands.

Sjá nánar: Afgangur á viðskiptajöfnuði 61,8 ma.kr. á þriðja fjórðungi 2023 – hrein staða við útlönd jákvæð um 31,2% af VLF.

Frétt nr. 20/2023
1. desember 2023


Til baka