logo-for-printing

20. nóvember 2023

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2023

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta er óbreyttur frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 10/2023 dagsettri 19. október sl. þar sem að engar breytingar hafa átt sér stað á meginvöxtum bankans síðan þá.

Dráttarvextir eru því að sama skapi óbreyttir og verða áfram 17,00% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2023.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir, verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2023:

• Vextir óverðtryggðra útlána 9,60% - (fara úr 9,55%)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,15% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 6,40% - (fara úr 6,37%)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2023

 

Til baka