logo-for-printing

23. júní 2023

Reglubundinni umræðu um Ísland lokið í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Miðvikudaginn 14. þessa mánaðar fór fram árleg umræða í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) um stöðu og horfur í efnahagsmálum á Íslandi samkvæmt fjórðu grein stofnsáttmála um sjóðinn (e. Article IV Consultation). Þá var einnig til umræðu heildstæð úttekt sjóðsins á íslenska fjármálakerfinu (e. Financial Sector Assessment Program (FSAP)). Sú úttekt er valkvæð í tilviki Íslands en skyldubundin fyrir lönd með kerfislega mikilvæg fjármálakerfi á alþjóðavísu.

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins átti fundi með íslenskum stjórnvöldum og ýmsum hagaðilum nú í vor vegna fjórðu greinar stofnsáttmálans. Þá átti FSAP-sendinefnd sjóðsins fundi með stjórnvöldum og hagaðilum undir lok árs 2022 og aftur í mars 2023 vegna úttektar á fjármálakerfinu. Úttektin stóð yfir meginhluta vetrarins og fól m.a. í sér ýmsar gagnabeiðnir og svörun spurningalista. Tilgangur úttektarinnar var að kanna viðnámsþrótt fjármálakerfisins, gæði reglusetningar og eftirlits og burði landsins til að takast á við fjármálaáföll.

Skýrslur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland voru birtar í dag á heimasíðu sjóðsins, sjá hér fyrir neðan:

Skýrsla sem byggð er á 4. grein stofnsáttmála Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og fjallar um stöðu og horfur í efnahagsmálum á Íslandi.

Úttekt á fjármálakerfinu á Íslandi (Financial Sector Assessment Program)

Sjá hér einnig eldri frétt: Árlegum viðræðum sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins við íslensk stjórnvöld og aðra hagaðila lokið

Sjá hér skýrslur um Ísland og fleira: Country Reports - Iceland  

Til baka