logo-for-printing

30. desember 2019

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2019

Gjaldmiðlavogum sem liggja til grundvallar útreikningum á vísitölum meðalgengis hefur verið breytt í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2018. Endurskoðun fór síðast fram í upphafi árs 2019. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar gilda frá og með 1. janúar 2020 til næstu endurskoðunar að ári.

Gjaldmiðlavogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli eins vel og kostur er samsetningu vöru- og þjónustuviðskipta þjóðarinnar. Val á gjaldmiðlum í vogir byggist á 3 ára meðalhlutdeild ríkja í vöru- og þjónustuviðskiptum landsins. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi:

Þröng vöruskiptavog (A), þröng þjónustuvog (C) og þröng viðskiptavog (E):
• Brasilíski ríal fellur út

Víð vöruskiptavog (B), víð þjónustuvog (D) og víð viðskiptavog (F):
• Singapúrskur dalur bætist við

Í vöruviðskiptavogum eykst vægi norsku krónunnar og kínverska júansins töluvert milli ára auk þess sem vægi bandaríska, kanadíska og singapúrska dalsins eykst nokkuð. Á móti minnkar vægi evrunnar, tyrknesku lírunnar og sádi-arabíska ríalsins mest. Helstu breytingar á þjónustuvog eru aukið vægi Bandaríkjadals en mest dregur úr vægi dönsku og sænsku krónunnar auk þess sem vægi norsku krónunnar, kanadíska dalsins og sádi-arabíska ríalsins minnkar nokkuð. Viðskiptavogirnar endurspegla þessar breytingar að mestu leyti. Vægi Bandaríkjadals eykst mest milli ára en vægi evrunnar, tyrknesku lírunnar, sádi-arabíska ríalsins og dönsku krónunnar minnka.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum:

Vogir 2019
Vogir 2019
Til baka