logo-for-printing

20. nóvember 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2019

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 11/2019 dagsett 21. október sl. þar sem að meginvextir lækkuðu um 0,25% hinn 6. nóvember 2019 sbr. tilkynningu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. lán gegn veði í 7 daga, lækkaði sem nam meginvaxtalækkuninni um 0,25% úr 4.00% niður í 3,75%.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,25% og lækka úr 11,00% og verða 10,75% fyrir tímabilið 1. - 31. desember 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast óbreyttir og verða áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. desember 2019:

• Vextir óverðtryggðra útlána 5,20%
• Vextir verðtryggðra útlána 2,90%
• Vextir af skaðabótakröfum 3,47%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 11/2019

Til baka