logo-for-printing

19. maí 2017

Skilmálar vegna kaupa á aflandskrónum

Bygging Seðlabanka Íslands

Með vísan til fréttatilkynningar Seðlabanka Íslands 5. maí sl. býðst bankinn til að kaupa aflandskrónueignir, eins og þær eru skilgreindar í lögum um meðferð krónueigna sem háðar eru sérstökum takmörkunum nr. 37/2016, í skiptum fyrir reiðufé í evrum á genginu 137,5 krónur á evru. Tilboðið nær til aflandskrónueigna í formi innstæðna, víxla og skuldabréfa sem gefin eru út af ríkissjóði eða Íbúðalánasjóði, og innstæðubréfa Seðlabankans (CBI2016). Aflandskrónueignum í formi innstæðna skal skipt í innstæðubréf Seðlabankans áður en til viðskipta kemur. Verð taka mið af hagstæðasta kauptilboði við lok viðskipta 10. mars 2017, eins og nánar er tilgreint í skilmálum tilboðsins. Allar greiðslur af hálfu Seðlabankans verða inntar af hendi í gegnum Clearstream og Euroclear sem eru milligönguaðilar bankans vegna tilboðsins.

Tilboðið nær til erlendra fjármálafyrirtækja, sjóða og viðurkenndra mótaðila sem uppfylla skilyrði Seðlabankans um varnir gegn peningaþvætti og aðrar kannanir á áreiðanleika viðskiptamanna gagnvart Clearstream og Euroclear. Slíkir aðilar geta átt viðskipti hvort sem er fyrir eigin reikning eða fyrir hönd viðskiptavina sinna.

Eigendur aflandskróna skulu hafa samband við vörsluaðila viðkomandi eigna vegna viðskipta og uppgjörs. Tekið skal fram að frestur til að skila beiðnum um viðskipti og uppgjör viðskipta getur verið mismunandi eftir vörsluaðilum.

Beiðnir um viðskipti verða að hafa borist frá milligönguaðilum til Seðlabankans í síðasta lagi fyrir lok dags fimmtudaginn 15. júní 2017 en uppgjör mun fara fram hinn 22. júní 2017.

Skilmála tilboðsins má finna hér

Nánari upplýsingar veita Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Sturla Pálsson framkvæmdastjóri í síma 569 9600. Fyrirspurnir um framkvæmd er hægt að senda í netfangið offshore@sedlabanki.is.

Nr. 16/2017
19. maí 2017

Til baka