logo-for-printing

30. desember 2007

Endurskoðun á gjaldmiðlavogum 2007

Seðlabanki Íslands hefur endurskoðað gengisskráningarvogir sem liggja til grundvallar skráningu á vísitölum meðalgengis í ljósi utanríkisviðskipta ársins 2006. Slík endurskoðun fór síðast fram í desember 2006. Meðfylgjandi töflur sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum. Nýju vogirnar munu mæla gengisbreytingar í vísitölum meðalgengis frá gengisskráningu frá og með 1.desember 2007 og þar til næsta endurskoðun fer fram. 

Gengisskráningarvogirnar eru endurskoðaðar árlega í ljósi samsetningar utanríkisviðskipta árið áður. Markmiðið er að þær endurspegli ætíð eins vel og kostur er samsetningu utanríkisviðskipta þjóðarinnar, bæði vöru- og þjónustuviðskipta. Helstu breytingar frá fyrri vogum eru eftirfarandi: 

Þrengri vöruskiptavog (A) og þrengri viðskiptavog (C): 

  • Rússnesk rúbla fellur út

  • Eistnesk króna fellur út

  • Litháensk litas bætist við

Breið vöruskiptavog (B) og breið viðskiptavog (D): 

  • Tyrknesk líra bætist við

  • Tékknesk króna bætast við 

Seðlabankinn mun í framhaldinu hætta birtingu núverandi vísitölu gengisskráningar. Vísitalan verður þó reiknuð áfram til ársloka 2008 út frá núgildandi vog sem tók gildi í júlí 2005.

Töflur er sýna nýju vogirnar og breytingar frá fyrri vogum: 

Vogir 2007, byggðar á gögnum 2006

Vogir 2007

Til baka