logo-for-printing

09. janúar 2006

Efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok desember 2005

Í meðfylgjandi töflu er sýndur efnahagsreikningur Seðlabanka Íslands í lok desember 2005 og til samanburðar í lok nóvember 2005 og í lok desember 2004.

Þar sem áramótauppgjöri og endurskoðun er ekki að fullu lokið eru tölur fyrir desemberlok 2005 bráðabirgðatölur og kunna þær að taka breytingum í endanlegu uppgjöri.

Gjaldeyrisforði bankans jókst um 3,1 milljarð króna í mánuðinum og nam 67,3 milljörðum króna í lok hans sem jafngildir 1.065 milljónum Bandaríkjadala miðað við gengi í mánaðarlok. Gjaldeyrisforðinn jókst vegna kaupa Seðlabankans á gjaldeyri á innlendum markaði.

Gengi íslensku krónunnar var nánast óbreytt í desember.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofnanir hækkuðu um 15 milljarða króna í desember og námu 77,8 milljörðum króna í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjármálastofnanir lækkuðu um 0,9 milljarða króna og námu 11,9 milljörðum króna í mánaðarlok.
 
Markaðsskráð verðbréf í eigu bankans námu 1,8 milljörðum króna í lok desember miðað við markaðsverð.
Seðlar og mynt í umferð jukust um 0,8 milljarða í mánuðinum og hafa þá aukist um 1,6 milljarða frá áramótum og nema 13,2 milljörðum króna í árslok.
Skuldir Seðlabankans við innlánsstofnanir hækkuðu um 5,4 milljarða króna í mánuðinum og námu 34,2 milljörðum króna í desemberlok.

Nettóinnstæður ríkissjóðs og ríkisstofnana hækkuðu um 10,9 milljarða króna og námu 75,9 milljörðum króna í lok desember.

Grunnfé bankans jókst í desember um 6,2 milljarða króna og nam 47,5 milljörðum króna í mánaðarlok.

Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Erla Árnadóttir aðalbókari í síma 569-9600.

Fréttin í heild með töflu (pdf-skjal 38KB)

Nr. 1/2006
9. janúar 2006

Til baka