logo-for-printing

03. febrúar 1999

Álit sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kynnti sér íslensk efnahagsmál á fundum með fulltrúum stjórnvalda dagana 20.'28. janúar sl. Á lokafundi nefndarinnar lagði formaður hennar fram álit og niðurstöður af viðræðum hennar og athugunum hér á landi. Hliðstæðar viðræður fara fram árlega við nánast öll aðildarríki sjóðsins 182 að tölu. Álit sendinefndarinnar fylgir hjálagt í lauslegri íslenskri þýðingu. 

Eftir heimsókn sendinefndar sjóðsins í nóvember 1997 var álit hennar í fyrsta sinn birt opinberlega. Á vettvangi sjóðsins hefur um skeið verið rætt hvernig gera megi eftirlit sjóðsins með efnahagsmálum aðildarlanda sýnilegra en jafnframt að haldið sé trúnaði í viðræðum stjórnvalda aðildarlanda og fulltrúa sjóðsins. Afrakstur þessa hefur m.a. verið sá að á undanförnum misserum hafa æ fleiri aðildarlönd sjóðsins tekið að birta álit sendinefndar við lok viðræðna. Ísland bættist í þann hóp 1997.

 Nánari upplýsingar veita bankastjórar Seðlabanka Íslands og Ólafur Ísleifsson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs bankans, í síma 569-9600.

Álit sendinefndar-skjal

Nr. 8/1999
3. febrúar 1999

Til baka