logo-for-printing

Bankakerfi

24. apríl

Mars 2024

Eignir innlánsstofnana námu 5.554,4 ma.kr. í lok mars og hækkuðu um 82,5 ma.kr í mánuðinum. Innlendar eignir innlánsstofnana námu 4.982,6 ma.kr. og hækkuðu um 88 ma.kr. Erlendar eignir námu 571,8 ma.kr. og lækkuðu um 5,5 ma.kr. Innlendar skuldir voru 3.754 ma.kr. og hækkuðu um 71,9 ma.kr. í mars. Erlendar skuldir námu 997,7 ma.kr. og hækkuðu um 29,2 ma.kr. Eigið fé innlánsstofnana nam 802,7 ma.kr. í lok mars og lækkaði um 18,6 ma.kr. í mánuðinum.

Ný útlán að frádregnum uppgreiðslum námu 68,5 ma.kr. í lok mars, þar af voru verðtryggð lán 36,8 ma.kr., óverðtryggð lán 10,8 ma.kr., lán í erlendum gjaldmiðlum 18,2 ma.kr. og eignarleiga 2,6 ma.kr.

Ný útlán til heimila að frádregnum uppgreiðslum námu 11 ma.kr. í mars, þar af námu lán með veði í íbúð 8,9 ma.kr. sem var 22 m.kr. lækkun frá febrúar.


Næsta birting: 24. maí 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is