logo-for-printing

29. júní 2015

Moody's hækkar lánshæfiseinkunn ríkissjóðs

Bygging Seðlabanka Íslands

Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's tilkynnti í dag um hækkun á lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands í Baa2 úr Baa3. Horfur verða áfram stöðugar.

Í fréttatilkynningu frá Moody's kemur fram að ákvörðun um hækkun lánshæfismatsins byggist á þremur lykilþáttum:

  1. Vandlega undirbúnar aðgerðir hafa verið kynntar til að losa fjármagnshöft sem gera ráð fyrir að draga úr viðkvæmri erlendri stöðu þjóðarbúsins samhliða því að standa vörð um efnahagslegan og fjármálalegan stöðugleika.
  2. Væntingar um bætta skuldastöðu Ríkissjóðs Íslands á næstu þremur til fjórum árum vegna öflugs hagvaxtar, frekara aðhalds í ríkisfjármálum og fyrirframgreiðslu skulda ríkissjóðs.
  3. Bætt umgjörð þjóðhags- og eindarvarúðarreglna sem miða að því að varðveita fjármálastöðugleika til framtíðar.

Moody's hefur einnig hækkað landseinkunnina fyrir erlendar skuldir til langs tíma og skamms tíma og innstæður í Baa2/P-2 úr Baa3/P-3 og landseinkunnina fyrir skuldir og innstæður í innlendri mynt í Baa1 úr Baa2.

Fréttatilkynningu Moody's má nálgast hér.


Til baka