Fara beint í Meginmál
7039 niðurstöður fundust
Fjöldi á síðu
3. september 2026

Á öðrum ársfjórðungi 2026 var 120,3 ma.kr. halli á viðskiptajöfnuði við útlönd eða 9,3% af landsframleiðslu. Vöruskiptajöfnuður mældist neikvæður um 154,4 ma.kr. en 66,6 ma.kr. afgangur var á þjónustujöfnuði. Halli af frumþáttatekjum nam 18,0 ma.kr. og 14,5 ma.kr. af rekstrarframlögum. Hrein erlend staða þjóðarbúsins batnaði um 6,8% af landsframleiðslu milli fjórðunga og mælist jákvæð um 46,9% af landsframleiðslu í lok ársfjórðungsins.

Peningastefna
2. september 2026

Fundargerð fundar peningastefnunefndarinnar 17.-18. ágúst 2026 hefur verið birt. Á honum ræddi nefndin efnahagsþróunina, þróun á fjármálamörkuðum, ákvarðanir um beitingu stjórntækja bankans í peningamálum og kynningu þeirra ákvarðana 19. ágúst.

1. september 2026

Seðlabanki Íslands hefur hafið reglulega birtingu gagna um gjaldeyrisviðskipti innlendra viðskiptabanka með íslensku krónuna. Gögnin sýna mánaðarlega veltu á gjaldeyrismarkaði og ná til bæði kaupa og sölu íslenskra króna fyrir erlenda gjaldmiðla í stundarviðskiptum (e.spot).

Peningastefna
28. ágúst 2026

Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, og Karen Áslaug Vignisdóttir, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu í Seðlabanka Íslands, sóttu nýverið fundi hjá fimm fjármálafyrirtækjum, þ.e. Landsbankanum, Íslandsbanka, Arion banka, Kviku banka og Arctica Finance. Karen kynnti efni nýútgefinna Peningamála 2026/3 og Þórarinn fjallaði um og svaraði spurningum varðandi yfirlýsingu peningastefnunefndar og nýlega vaxtaákvörðun.

27. ágúst 2026

Seðlabankinn stóð fyrir málstofu föstudaginn 28. ágúst 2026 kl. 10:00–11:00 þar sem Sophia Gilbukh, lektor við CUNY Baruch College, Zicklin School of Business flutti erindi byggt á grein sinni „New Listing Alert: Alternative Theory of Housing Search."

27. ágúst 2026

Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika flutti í dag erindi á haustfundi um fasteignamarkaðinn sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stóð fyrir. Þar fjallaði hann um stöðu fasteignamarkaðarins og áhrif lánþegaskilyrða.

Peningastefna
26. ágúst 2026

Seðlabankinn framkvæmir ársfjórðungslega útlánakönnun meðal viðskiptabankanna fjögurra. Samkvæmt svörum  jókst framboð á húsnæðislánum til heimila lítillega á síðustu þremur mánuðum og gera bankarnir ráð fyrir lítils háttar aukningu á framboði næstu sex mánuði.  Eftirspurn eftir bílalánum jókst lítillega á síðustu þremur mánuðum gert erir ráð fyrir að hún dragist aðeins saman á næstu sex mánuðum.

Peningastefna
24. ágúst 2026

Þriðjudaginn 25. ágúst fer fram málstofa þar sem Richhild Moessner kynnir rannsókn sem kom út fyrr á árinu undir heitinu Reactions of household inflation expectations to a symmetric inflation target and high inflation. Málstofan fer fram í húsnæði Seðlabankans við Kalkofnsveg 1 frá klukkan 15:00 til 16:00.

Kalkofninn
21. ágúst 2026

Hagvöxtur í helstu viðskiptalöndum var að meðaltali 1,6% á fyrsta ársfjórðungi og virðast efna hagsumsvif hafa haldið ágætlega velli það sem af er sumri. Alþjóðlegar hagvaxtarhorfur eru áþekkar og talið var í vor og spáð er 1,5% hagvexti í ár.

Fjármálaeftirlit
20. ágúst 2026

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hefur lokið máli sem varðaði brot einstaklings gegn c-lið 14. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. 10. gr. reglugerðarinnar, sem hefur lagagildi hér á landi samkvæmt lögum nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að miðla innherjaupplýsingum til annarra nema slíkt fari fram í eðlilegu sambandi við starf, stöðu eða skyldur þess sem býr yfir upplýsingunum.