Seðlabanki Íslands leggur áherslu á metnaðarfullt starfsumhverfi með það að markmiði að byggja upp trausta liðsheild. Með áherslu á virðingu og vellíðan, jafnrétti, þekkingu, fagmennsku og framsækni nær bankinn markmiðum sínum með árangursríkum hætti.
Sérfræðingur í markaðs- og vaxtaáhættu
Seðlabanki Íslands óskar eftir öflugum aðila til þess að sinna eftirliti með fjárhagslegum áhættum eftirlitsskyldra aðila á fjármálamarkaði, með áherslu á markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða öflugan aðila til að sinna eftirliti með fjárhagslegum áhættum eftirlitsskyldra aðila á fjármálamarkaði, með áherslu á markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu. Í starfinu felst meðal annars mat á fastvaxtaáhættu fjármálafyrirtækja (IRRBB), áhrifum markaðsbreytinga á eignir og skuldbindingar, notkun afleiðna og áhættuvarna og því hvernig eftirlitsskyldir aðilar stýra áhættuþáttum.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem tækifæri gefst til að dýpka þekkingu á áhættu á banka-, lífeyris- og vátryggingamarkaði og fá víðtæka sýn á ólíka áhættuþætti á fjármálamarkaði.
Svið varúðareftirlits hefur eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga, lífeyrissjóða og annarra fyrirtækja á fjármálamarkaði. Starfsemi sviðsins felst jafnframt í að viðhafa yfirsýn yfir þróun áhættu á fjármálamarkaði og viðeigandi regluverk. Deild fjárhagslegra áhættuþátta sinnir greiningu og eftirliti með helstu fjárhagslegum áhættuþáttum þessara aðila, þar á meðal útlána-, markaðs-, lausafjár og fjármögnunaráhættu. Þá tekur svið varúðareftirlits þátt í mati á kerfisáhættu, í samvinnu við fjármálastöðugleikasvið bankans.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Eftirlit með markaðs-, vaxta- og fjárfestingaráhættu fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga
- Mat á fastvaxtaáhættu (IRRBB), áhrifum markaðsbreytinga á eignir og skuldbindingar, afleiðum og áhættuvörnum
- Mat á eiginfjárþörf fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga vegna markaðs- og vaxtaáhættu
- Mat á því hvernig eftirlitsskyldir aðilar mæla, meta og stýra fjárhagslegri áhættu
- Þróun á aðferðafræði Seðlabankans við mat á markaðs- og vaxtaáhættu fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða og vátryggingafélaga
- Þátttaka í norrænu og alþjóðlegu samstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði fjármála, hagfræði, verkfræði, stærðfræði eða skyldra greina
- Þekking á eðli fjármálamarkaða og fjármálagerningum
- Viðeigandi þekking og reynsla af störfum á fjármálamarkaði er kostur
- Rík greiningarhæfni og hæfni til að vinna úr gögnum
- Þekking á gagnagrunnum og reynsla af gagnavinnslu, t.d. með SQL, Power BI eða R
- Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu
- Frumkvæði, heiðarleiki, sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Gott vald á íslensku og ensku í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar veita Jónas Þór Brynjarsson, forstöðumaður fjárhagslegra áhættuþátta (jonas.thor.brynjarsson@sedlabanki.is) og Hólmfríður Þorvaldsdóttir, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar (holmfridur.thorvaldsdottir@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 21. september nk.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Sérfræðingur í þróun gagnavöruhúss
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og metnaðarfullan einstakling til að taka þátt í þróun og uppbyggingu nútímalegra gagnainnviða á fjármálamarkaði.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Starfið er innan deildar þróunar og gagnahögunar á sviði upplýsingatækni sem ber ábyrgð á þróun og rekstri tölvukerfa og gagnaumhverfis bankans. Þar starfar öflugt teymi sérfræðinga í gagnasamþættingu, hugbúnaðarþróun og DevOps. Áhersla er lögð á stöðugar umbætur, trausta innviði, góða gagnastjórnun og faglegt samstarf við hagaðila.
Verið er að þróa nýtt gagnavöruhús sem sameinar gögn úr lykilkerfum bankans og styður við greiningar, eftirlit, gagnaskil og upplýsta ákvarðanatöku. Viðkomandi mun taka þátt í hönnun og þróun gagnainnviða, gagnaflæðis og gagnalíkana með áherslu á áreiðanlega gagnavinnslu. Í starfinu felast einnig tækifæri til að kanna og þróa leiðir til að hagnýta vélnám og gervigreind í uppbyggingu gagnavöruhússins, meðal annars í útgáfuferlum, gæðaprófunum, sjálfvirkni og annarri gagnavinnslu.
Mikilvægast er að viðkomandi hafi sterkan tæknilegan grunn, reynslu af þróun gagnalausna, skilning á fjármálamarkaði og metnað til að byggja upp vandaðar og áreiðanlegar gagnavöruhúsalausnir.
Helstu verkefni
- Hönnun og þróun gagnavöruhúss
- Þróun gagnaflæðis og gagnasamþætting
- Gagnalíkanagerð og uppbygging gagnaferla
- Tryggja gæði og áreiðanleika gagna
- Samstarf við greiningar- og þróunarteymi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi, t.d. á sviði hugbúnaðarverkfræði, tölvunarfræði eða gagnavísinda.
- Góð þekking og reynsla af SQL, gagnagrunnum, gagnalíkanagerð, gagnavöruhúsum og vinnslu stórra gagnasafna.
- Þekking og reynsla af gagnavinnsluferlum (ETL/ELT)
- Reynsla af því að leiða eða bera verulega tæknilega ábyrgð á þróun gagnalausna frá hugmynd og hönnun til innleiðingar og notkunar.
- Þekking og reynsla af þróun, mati og hagnýtingu vélnámslíkana.
- Reynsla af vinnslu og greiningu færslugagna eða annarra fjármálagagna og þróun lausna sem styðja við gagnadrifna ákvarðanatöku.
- Þekking og reynsla af persónuvernd, öruggri meðhöndlun viðkvæmra gagna og þróun öruggra gagnavinnsluferla.
- Reynsla af samstarfi þvert á teymi og deildir, mótun lausna út frá þörfum notenda og miðlun niðurstaðna til hagaðila og stjórnenda.
- Áræðni, heiðarleiki og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Góð samskipta- og teymisfærni og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.
Frekari upplýsingar um starfið veita Elín Rut Guðnadóttir, forstöðumaður þróunar og gagnahögunar, Elin.Rut.Gudnadottir@sedlabanki.is og Árni Ragnar Stefánsson, mannauðsráðgjafi á sviði mannauðs og menningar, mannaudur@sedlabanki.is. Umsóknarfrestur er til og með 21. september nk.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfsnemi á svið fjármálastöðugleika
Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?
Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.
Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?
Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu á svið fjármálastöðugleika með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.
Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans. Starfið veitir dýrmæta reynslu í öflugu þekkingarumhverfi og er liður í að efla tengsl bankans við háskólasamfélagið og styðja við uppbyggingu framtíðarhagfræðinga.
Fjármálastöðugleikasvið er eitt af kjarnasviðum bankans. Sviðið annast greiningu á áhættu í fjármálakerfinu, hefur eftirlit með gjaldeyrisjöfnuði lánastofnana og tekur þátt í mótun þjóðhagsvarúðarreglna fyrir fjármálakerfið til að draga úr kerfisáhættu. Þá annast sviðið eftirlit samkvæmt lögum um gjaldeyrismál. Fjármálastöðugleikasvið mótar stefnu fyrir rekstrarumgjörð kerfislega mikilvægra fjármálainnviða, hefur umsjón með atvikamiðstöð fjármálakerfisins og netárásarprófunum fyrir stofnanir og fyrirtæki sem eru mikilvæg fyrir íslenskt fjármálakerfi. Sviðið hefur umsjón með útgáfu ritsins Fjármálastöðugleiki og undirbýr efni sem lagt er til grundvallar ákvarðanatöku hjá fjármálastöðugleikanefnd.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við rannsóknar- og greiningarverkefni á sviði fjármálastöðugleika.
- Söfnun, úrvinnsla og greining hagfræðilegra og tölfræðilegra gagna.
- Þátttaka í gagnavinnslu og þróun greininga og rannsóknaverkefna.
- Önnur verkefni undir handleiðslu sérfræðinga bankans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Grunnpróf í hagfræði.
- Framúrskarandi námsárangur í hagfræði á háskólastigi.
- Ríkur áhugi á hagfræði, rannsóknum og gagnagreiningu.
- Sterk greiningar- og tölfræðihæfni.
- Fagleg, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Þekking á R, Python, Matlab eða öðrum sambærilegum greiningarverkfærum er kostur.
Sem starfsnemi færðu tækifæri til að:
- Kynnast störfum Seðlabankans.
- Taka þátt í rannsóknum og greiningum sem styðja við mikilvægt hlutverk Seðlabanka Íslands.
- Vinna með reyndum sérfræðingum og njóta handleiðslu í öflugu fagumhverfi.
- Efla greiningar-, rannsóknar- og tæknilega hæfni þína.
Frekari upplýsingar veita Þorsteinn S. Sveinsson, forstöðumaður á sviði fjármálastöðugleika (thorsteinn.sigurdur.sveinsson@sedlabanki.is) og Íris Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 21. september n.k.
Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs í fullu starfi. Starfsstöð er í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt einkunnayfirliti úr háskóla.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Við launasetningu starfsins er tekið mið af starfsheitinu ”nýliðar” skv. kjarasamningi. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Starfsnemi á svið hagfræði og peningastefnu
Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?
Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.
Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Hefur þú áhuga á að taka þátt í rannsóknum og greiningum sem hafa áhrif á íslenskt efnahagslíf?
Seðlabanki Íslands leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starfsnemastöðu á svið hagfræði og peningastefnu með það að markmiði að veita innsýn í starfsemi Seðlabanka Íslands.
Sem starfsnemi tekur þú þátt í rannsóknum, greiningum og gagnavinnslu með hagfræðingum Seðlabankans. Starfið veitir dýrmæta reynslu í öflugu þekkingarumhverfi og er liður í að efla tengsl bankans við háskólasamfélagið og styðja við uppbyggingu framtíðarhagfræðinga.
Svið hagfræði og peningastefnu er eitt af kjarnasviðum bankans. Meginhlutverk þess er að hafa umsjón með greiningu á þróun innlendra og erlendra efnahags- og peningamála. Sviðið gerir einnig þjóðhags- og verðbólguspár til þriggja ára og áhættumat sem liggur til grundvallar mótun peningastefnunnar. Greining á stöðu og efnahagshorfum hverju sinni er birt í ritinu Peningamálum og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin fjórum sinnum á ári. Jafnframt tekur sviðið þátt í mótun stefnu í gengis- og peningamálum og stundar rannsóknir á sviði efnahags- og peningamála.
Helstu verkefni:
- Aðstoð við rannsóknar- og greiningarverkefni á sviði hagfræði og peningastefnu.
- Aðstoð við söfnun, úrvinnslu og greiningu hagfræðilegra og tölfræðilegra gagna.
- Þátttaka í gagnavinnslu og þróun greininga og rannsóknaverkefna.
- Önnur verkefni undir handleiðslu sérfræðinga bankans.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Grunnpróf í hagfræði.
- Framúrskarandi námsárangur í hagfræði á háskólastigi.
- Ríkur áhugi á hagfræði, rannsóknum og gagnagreiningu.
- Sterk greiningar- og tölfræðihæfni.
- Fagleg, sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.
- Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.
- Þekking á R, Python, Matlab eða öðrum sambærilegum greiningarverkfærum er kostur.
Sem starfsnemi færðu tækifæri til að:
- Kynnast störfum Seðlabankans.
- Taka þátt í rannsóknum og greiningum sem styðja við mikilvægt hlutverk Seðlabanka Íslands.
- Vinna með reyndum sérfræðingum og njóta handleiðslu þeirra í öflugu fagumhverfi, efla greiningar-, rannsóknar- og tæknilega hæfni þína.
Frekari upplýsingar veita Bjarni Geir Einarsson, hagfræðingur á sviði hagfræði og peningastefnu (bjarni.geir.einarsson@sedlabanki.is), Lúðvík Elíasson, aðstoðarframkvæmdastjóri á sviði hagfræði og peningastefnu (ludvik.eliasson@sedlabanki.is) og Íris Guðrún Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 21. september n.k.
Um er að ræða tímabundna stöðu til eins árs í fullu starfi. Starfsstöð er í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf ásamt einkunnayfirliti úr háskóla.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Við launasetningu starfsins er tekið mið af starfsheitinu ”nýliðar” skv. kjarasamningi. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.
Sérfræðistörf
Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum eins og að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila.
Nánar
Reykjavík - Hlutastarf
Við sérstakar aðstæður getur komið til þess að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands þurfi að semja við sérfræðinga til að sinna tilteknum verkefnum. Þá hefur fjármálaeftirlitið sérstaka heimild til að skipa sérfræðing til að athuga tiltekna þætti í starfsemi eða rekstri eftirlitsskylds aðila eða til að hafa að öðru leyti sértækt eftirlit með eftirlitsskyldum aðila, sbr. 2. mgr. 9. gr. laga nr. 87/1998, um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Jafnframt hefur fjármálaeftirlitið meðal annars heimild til að skipa við sérstakar aðstæður fjármálafyrirtæki bráðabirgðastjórnanda, sbr. 107. gr. e laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og vátryggingafélagi slitastjórn, sbr. 152. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið tekur við ferilskrám, og eftir atvikum kynningarbréfum, þeirra sem eru reiðubúnir að gefa kost á sér til slíkra starfa. Einnig geta fyrirtæki gefið kost á tilteknum starfsmönnum sínum til slíkra starfa. Leitað er að einstaklingum með fjölbreytta þekkingu og reynslu á sviði lögfræði, viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði, fjármálamarkaða, reksturs, stjórnunar, upplýsingatækni, reikningsskila o.fl.
Ferilskrá, og eftir atvikum kynningarbréf, skulu gefa glögga mynd af menntun og reynslu hlutaðeigandi. Upplýsingarnar verða aðgengilegar viðeigandi stjórnendum innan fjármálaeftirlitsins ef til greina kemur að semja við sérfræðing til að sinna tilteknu verkefni. Þá skulu upplýsingar um heimilisfang, símanúmer og netfang fylgja ferilskránni. Jafnframt er mikilvægt að fram komi upplýsingar um tengsl hlutaðeigandi við einstaka eftirlitsskylda aðila. Vakin er athygli á því að almennt koma starfsmenn eftirlitsskyldra aðila ekki til greina til umræddra sérfræðistarfa.
Fyrirspurnir má senda á netfangið sedlabanki@sedlabanki.is.
Almenn umsókn
Hér getur þú sent inn almenna umsókn í tímabundin störf.
Nánar
Reykjavík - Hlutastarf
Takk fyrir að sýna því áhuga á að starfa með okkur í Seðlabanka Íslands.
Seðlabanka Íslands ber skylda til að auglýsa opinberlega laus störf samkvæmt 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. nánar reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsþjálfun
Hér getur þú sent inn umsókn um starfsþjálfun.
Nánar
Reykjavík - Fullt starf
Takk fyrir að sýna því áhuga að koma í starfsþjálfun hjá okkur í Seðlabanka Íslands.
Hér getur þú sótt um að koma til okkar í starfsþjálfun. Við förum reglulega yfir umsóknir og verðum í sambandi ef við höfum lausa starfsþjálfunarstöðu við þitt hæfi. Starfsþjálfun er einstakt tækifæri fyrir háskólanema til að öðlast hagnýta og starfstengda reynslu og er markmið okkar að bjóða reglulega upp á fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til að kynnast verkefnum og starfsemi bankans.