logo-for-printing

Verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóðir

29. apríl

Mars 2024

Eignir verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóða námu 1.225,0 ma.kr. í mars og lækkuðu um 15,2 ma.kr. milli mánaða. Eignir verðbréfasjóða námu 155,4 ma.kr. og lækkuðu um 0,4 ma.kr., eignir fjárfestingarsjóða námu 492,7 ma.kr. og lækkuðu um 5,9 ma.kr. og eignir fagfjárfestasjóða námu 576,9 ma.kr. og lækkuðu um 8,9 ma.kr.

Fjöldi sjóða í lok mars var 241 sem skiptist í 38 verðbréfasjóði, 76 fjárfestingarsjóði og 127 fagfjárfestasjóði.


Næsta birting: 27. maí 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is