logo-for-printing

Seðlar og mynt í umferð

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um skiptingu seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka Íslands. Samtalan er hluti af skuldahlið efnahagsreiknings Seðlabankans.

Þegar talað er um peninga í umferð er í flestum tilfellum átt við reiðufé utan Seðlabanka og innlánsstofnana. Munurinn á þeirri tölu og samtölu töflunnar er svokallaður nætursjóður innlánsstofnana. Nætursjóðurinn samanstendur af þeim seðlum og myntum sem eru á eignahlið efnahagsreiknings innlánsstofnana í lok viðskiptadags. Hluti þessa reiðufjár er í útibúum banka og sparisjóða og afgangurinn er í hraðbönkum þeirra.

Seðlastærð Í umferð utan SÍ í lok apríl 2024 %
10.000 kr. 42.112.075.000 62,8
5.000 kr.
15.848.040.000 23,6
2.000 kr.
207.999.000
0,3
1.000 kr.
7.074.506.000 10,5
500 kr.
1.852.300.750 2,8
        Samtals
67.094.920.750 100,0
Myntstærð Í umferð utan SÍ í lok apríl 2024
%
100 kr.
2.996.500.000 64,3
50 kr.
777.840.000 16,7
10 kr.
628.220.000 13,5
5 kr.
133.634.000
2,9
1 kr.
121.860.000
2,6
Samtals
4.658.054.000 100,0
     
Alls í umferð 71.752.974.750  

 

Hér að neðan er mynd sem sýnir þróun seðla og myntar í umferð utan Seðlabanka og innlánsstofnana í hlutfalli við verga landsframleiðslu. Það lækkaði upp úr 1960 með aukinni ávísananotkun og síðan kortaotkun. Í nokkuð langan tíma var þetta hlutfall um 1%. Í kjölfar áfallsins sem íslenskir viðskiptabankar urðu fyrir í októbermánuði 2008 hækkaði hlutfallið nokkuð og hefur síðan verið á bilinu 2-2,5%.