logo-for-printing

Lánasjóðir ríkisins

29. apríl

Mars 2024

Heildareignir lánasjóða ríkisins námu 929,1 ma.kr. í lok mars og hækkuðu um 10,9 ma.kr. á milli mánaða. Af heildareignum námu innlendar eignir tæplega 929 ma.kr. og erlendar eignir 151 m.kr.
Skuldir námu 1.090 ma.kr. og hækkuðu um 11,6 ma.kr. í mánuðinum. Þar af námu innlendar skuldir 1.089,8 ma.kr. og erlendar skuldir 244 m.kr.
Eigið fé lánasjóða ríkisins lækkaði um 707 m.kr. í mánuðinum og var neikvætt um 160,9 ma.kr. í lok mars.
Gögnin hafa verið endurskoðuð frá desember 2023 og má rekja meginhluta breytinga sem þá koma fram til breyttrar matsaðferðar útlána og innleiðingar á IPSAS reikningsskilastaðlinum.


Næsta birting: 27. maí 2024


Umsjón

Gagnamál | adstod@sedlabanki.is