logo-for-printing

09.10.2017

Erindi seðlabankastjóra um vexti, verðtryggingu og stöðu heimilanna

Már Guðmundsson seðlabankastjóri flutti erindi um vexti, verðtryggingu og stöðu heimilanna á fundi í Háskólabíói sem Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Verkalýðsfélag Akraness boðuðu til í samstarfi við Hagsmunasamtök heimilanna síðastliðinn laugardag. Í erindinu sagði seðlabankastjóri frá því að vextir Seðlabankans væru lágir hér á landi í innlendu og alþjóðlegu sögulegu samhengi, að vaxtamunur gagnvart viðskiptalöndum endurspegli mismunandi efnahagsástand hér og erlendis og að verðtryggð lán hafi að jafnaði verið talsvert ódýrari fyrir lántakendur en óverðtryggð. Þá hafi skuldir heimila sem hlutfall af ráðstöfunartekjum minnkað talsvert á undanförnum árum og séu sambærilegar við það sem var fyrir 20 árum, hrein eign heimilanna miðað við sama mælikvarða hafi vaxið talsvert og vanskil minnkað mjög mikið.

Við flutning erindisins studdist seðlabankastjóri við efni í meðfylgjandi skjali: Vextir, verðtrygging og staða heimilanna. Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Fundur um vexti og verðtryggingu. Háskólabíó 7. október 2017.

Til baka