logo-for-printing

05.05.2008

Peningastefnan og fasteignamarkaðurinn

Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, flutti framsöguerindi á fundi Félags fasteignasala 2. maí sl. um þróun fasteignamarkaðar.

Í erindinu fjallaði Arnór um fasteignamarkaðinn út frá því hlutverki Seðlabanka Íslands að halda verðlagi stöðugu. Þar greindi hann m.a. frá því að framvinda á húsnæðismarkaði hefði veruleg áhrif á verðbólguhorfur, greindi frá sögulegri þróun og horfum hér á landi og víðar og rakti ýmsa áhrifaþætti.

Sjá hér PP-skjal sem sýnir helstu áhersluatriði Arnórs í máli og myndum:

Peningastefnan og fasteignamarkaður - helstu atriði í framsöguerindi Arnórs Sighvatssonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands (PowerPoint-skjal)

 

Til baka