logo-for-printing

27. mars 2024

Uppfærðir og nýir Hagvísar birtir

Nýjar og uppfærðar tölur hafa verið birtar í Hagvísum hér á vef bankans. Í Hagvísum Seðlabanka Íslands, sem birtir hafa verið frá árinu 2002, er birt yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og yfirlit yfir stöðu fjármálakerfisins í tíu köflum. Í gagnvirkum Hagvísum er notendum gert kleift að nálgast og rýna gögnin með því t.d. að fletta á milli mynda, velja staka mynd til frekari skoðunar, breyta tímaás og hlaða niður gögnum.

Nánar
27. mars 2024

Niðurstaða athugunar á aðgerðum Monerium EMI ehf. gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka

Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hóf athugun á fylgni við lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Monerium EMI ehf. með bréfi dags. 3. apríl 2023. Niðurstaða athugunarinnar lá fyrir í janúar 2024.

Nánar
27. mars 2024Forsíða Hagvísa Seðlabanka Íslands

Hagvísar Seðlabanka Íslands 27. mars 2024

Seðlabanki Íslands birtir ársfjórðungslega yfirlit yfir þróun efnahagsmála, safn hagvísa og stöðu fjármálakerfisins, Hagvísa Seðlabanka Íslands. Hagvísarnir eru einnig gefnir út á ensku undir heitinu Economic Indicators.

Nánar
25. mars 2024Bygging Seðlabanka Íslands

Evrópska rafeyrisfyrirtækið PFS Card Services (Ireland) Limited (PCSIL) tekið til skipta

Seðlabankanum hefur borist tilkynning frá Seðlabanka Írlands um að rafeyrisfyrirtækið PFS Card Services (Ireland) Limited (PCSIL) hafi verið tekið til skipta. Fyrirtækið hefur haft heimild til að veita þjónustu yfir landamæri og því er mögulegt að fyrirtækið sé með íslenska viðskiptavini.

Nánar
21. mars 2024

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2024

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Nánar