Skráning PROSEGUR CHANGE ICELAND ehf. sem veitandi gjaldeyrisskiptaþjónustu
Hinn 12. apríl 2024 komst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands að þeirri niðurstöðu að PROSEGUR CHANGE ICELAND ehf. væri hæft til að fá skráningu sem veitandi gjaldeyrisskiptaþjónustu.
NánarFrekari upplýsingar vegna afturköllunar starfsleyfis NOVIS
Seðlabanki Íslands birti frétt 6. júní 2023 um ákvörðun Seðlabanka Slóvakíu (Národná banka Slovenska, NBS), eftirlitsaðila NOVIS* , um að afturkalla starfsleyfi vátryggingafélagsins. Frekari upplýsingar um afturköllunina eru aðgengilegar á vefsíðu Seðlabanka Íslands, sem hafa verið uppfærðar.
NánarFundargerð fjármálastöðugleikanefndar í mars 2024
Fundargerð frá fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands 11.-12. mars 2024 hefur verið birt.
NánarSkýrsla fjármálastöðugleikanefndar kynnt í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis
Skýrsla fjármálastöðugleikanefndar fyrir árið 2023 verður kynnt og til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis á morgun, fimmtudaginn 11. apríl 2024, klukkan 8:30. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika verða gestir á fundinum.
NánarStakkur Rekstrarfélag ehf. skráð sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða
Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands skráði Stakk Rekstrarfélag ehf. sem rekstraraðila sérhæfðra sjóða hinn 26. mars 2024, sbr. 7. gr. laga nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Í skráningunni felst heimild rekstraraðila til að reka sérhæfða sjóði að því gefnu að verðmæti heildareigna í rekstri aðila fari ekki umfram þau mörk sem kveðið er á um í 1. mgr. 6. gr. laga nr. 45/2020.
Nánar