logo-for-printing

16. janúar 2015

Seðlabanki Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals

Bygging Seðlabanka Íslands
SEÐLABANKI ÍSLANDS
auglýsir eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals.

Auglýst er eftir umsóknum um árlegan styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals og er afhentur af Seðlabanka Íslands. Ákveðið var að veita styrkinn fyrst í tilefni af 50 ára afmæli bankans á árinu 2011. Tilgangur með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands fyrir 20. febrúar 2015. Fjárhæð styrksins nemur 2.000.000 kr. og verður henni úthlutað í apríl eða maí 2015.

Reglur um úthlutun styrksins og eyðublöð fyrir umsóknir má finna hér: Menningarstyrkur tengdur nafni Jóhannesar Nordals 

Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra.

Seðlabanki Íslands • Kalkofnsvegi 1 • 150 Reykjavík • Sími: 569 9600
Til baka