logo-for-printing

21. ágúst 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 07/2015 útgefinni 16. júlí sl., er stýrivextir hækkuðu 0,50 prósentur hinn 19. ágúst sl. sbr. yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands þar um sama dag.
Dráttarvextir hækka því að sama skapi um 0,50 prósentur og verða 13,25% fyrir tímabilið 1. – 30. september 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. september 2015;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,10% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,07% - (óbreyttir

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 08/2015.

Til baka