logo-for-printing

22. júní 2015

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2015

Bygging Seðlabanka Íslands

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 06/2015
Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur breyst frá síðustu tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2015, útgefinni 19. maí sl., er stýrivextir hækkuðu um 0,50 prósentur hinn 10. júní sl. sbr. yfirlýsingu peningastefnunefndar þar um sama dag.
Dráttarvextir hækka því að sama skapi og verða 12,75% fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. júlí 2015;

• Vextir óverðtryggðra útlána 6,00% - (óbreyttir)
• Vextir verðtryggðra útlána 3,65% - (óbreyttir)
• Vextir af skaðabótakröfum 4,00% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvextir o.fl. nr. 06-2015.pdf

Til baka