
07. nóvember 2024
Virkur eignarhlutur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins í Íslenskum verðbréfum hf. og ÍV sjóðum hf.
.jpg?proc=AdalmyndFrett)
Hinn 29. október 2024 komst fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands að þeirri niðurstöðu að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins væri hæfur til að fara með allt að 20% óbeinan virkan eignarhlut í Íslenskum verðbréfum hf., ÍV sjóðum hf., Fossum fjárfestingarbanka hf. og Glym hf. samkvæmt lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga og lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, sbr. einnig lög nr. 45/2020 um rekstraraðila sérhæfðra sjóða og lög nr. 116/2021 um verðbréfasjóði.