logo-for-printing

15. september 2022

Endurbirtir fjármálareikningar

Bygging Seðlabanka Íslands

Fjármálareikningar fyrir Q2 2022, sem birtir voru 6. þessa mánaðar, hafa nú verið endurbirtir með uppfærðum tölum.

Misræmi í fyrri birtingu mátti að mestu leyti rekja til þess að nýjasti ársfjórðungur gagna um Innbyrðis fjármálastarfsemi byggði á nýrri ársreikningagrunni en eldri ársfjórðungar. Endurbirtingin nú tekur tillit til nýjustu gagna og hafa eldri tímabil verið uppfærð með hliðsjón af þeim.

Nánari útlistun á aðferðafræði Fjármálareikninga og Innbyrðis fjármálastarfsemi (bls. 4-5) má finna í lýsigögnum fjármálareikninga fjármálafyrirtækja.


Til baka