logo-for-printing

08. júlí 2022

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis

Skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis um störf nefndarinnar á fyrri hluta ársins 2022 er nú aðgengileg á vef bankans.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða á um að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Skýrslan hefur verið til umræðu í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Frá því að síðasta skýrsla var send Alþingi hefur nefndin haldið einn aukafund og þrjá reglulega fundi, og var síðasta yfirlýsing nefndarinnar birt 22. júní 2022. Eftirfarandi skýrsla fjallar um störf nefndarinnar frá janúar til júní 2022.

Skýrsluna má nálgast hér: Skýrsla peningastefnunefndar til Alþingis fyrir fyrri hluta ársins 2022

Hér er hægt að nálgast eldri skýrslur peningastefnunefndar til Alþingis: Skýrslur og fundir með þingnefndum Alþingis
Til baka