
08. október 2020
Síðasta ársskýrsla Fjármálaeftirlitsins

Sagt er frá eftirliti með fjármálafyrirtækjum, vátryggingastarfsemi, lífeyrissjóðum og vörsluaðilum séreignarsparnaðar, verðbréfamarkaðinum og rekstrarfélögum verðbréfasjóða. Þá er í skýrslunni einnig fjallað um hæfismat, leyfisveitingar, greiningu á kerfisáhættu og beitingu þjóðhagsvarúðartækja og eftirlit með aðgerðum til varnar peningaþvætti og alþjóðasamstarf Fjármálaeftirlitsins. Enn fremur er í skýrslunni umfjöllun um beitingu viðurlaga á tímabilinu, farið yfir þær breytingar sem urðu á réttarheimildum fjármálamarkaðar á þessu síðasta starfsári og sagt frá innviðum stofnunarinnar.
Hér má lesa Ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins 2020.