logo-for-printing

27. ágúst 2020

Tilkynning um fyrirhugaða yfirfærslu hluta vátryggingastofn

Harpan og bygging Seðlabanka Íslands
Hér með tilkynnist um yfirfærslu hluta vátryggingastofns frá Basler Versicherung AG til Bothnia International Insurnace Company Limited. Fyrirhuguð yfirfærsla er í samræmi við tilkynningu dagsetta 26. ágúst 2020 frá breska fjármálaeftirlitinu, Prudential Regulation Authority.

Vátryggingartakar og vátryggðir geta skilað skriflegum athugasemdum til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands (Fjármálaeftirlitsins) vegna fyrirhugaðrar yfirfærslu innan eins mánaðar frá birtingu þessarar tilkynningar.

Ekki liggja fyrir staðfestar upplýsingar um að hjá félaginu séu fyrirliggjandi vátryggingarsamningar vegna aðila hér á landi.

Fjármálaeftirlitið veitir nánari upplýsingar ef óskað er.
Til baka