logo-for-printing

20. maí 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu tilkynningu Seðlabanka Íslands nr. 04/2020 dags 20. apríl sl. um dráttarvexti og vexti af peningakröfum, þar sem að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti lækkun á meginvöxtum um 0,75 prósentur hinn 20. maí 2020 sbr. yfirlýsingu þar um sama dag. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru á lánum til 7 daga gegn veði, lækkar að sama skapi um 0,75 prósentur niður í 1,75%.

Dráttarvextir breytast því sem nemur 0,75 prósentum og verða því 8,75% fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2020.

Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. júní 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,00%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,30%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,67%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 05/2020

 


Til baka