logo-for-printing

21. apríl 2020

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2020

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Engin breyting hefur orðið á grunni dráttarvaxta frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 03/2020 dagsett 19. mars sl. þar sem að engin breyting hefur verið á meginvöxtum síðan þá. Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði í verðbréfum (7 daga veðlán), er því óbreyttur 2,50%.

Dráttarvextir verða því óbreyttir 9,50% fyrir tímabilið 1. - 31. maí 2020.

Aðrir vextir af peningakröfum sem Seðlabanki Íslands tilkynnir verða sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 31. maí 2020:

• Vextir óverðtryggðra útlána verða 4,04%
• Vextir verðtryggðra útlána verða 2,40%
• Vextir af skaðabótakröfum verða 2,69%

Tilkynning um vexti og vexti af peningakröfum nr. 04/2020


Til baka