logo-for-printing

21. mars 2019

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2019

Skógarþröstur við byggingu Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta hefur ekkert breyst frá síðustu vaxtatilkynningu Seðlabankans Íslands nr. 02/2019 dags 19. febrúar sl. þar sem að engin breyting hefur orðið á meginvöxtum (stýrivöxtum) síðan þá.
Grunnur dráttarvaxta, þ.e. þeir meginvextir sem eru lán gegn veði í verðbréfum, er því óbreyttur 5,25%.

Dráttarvextir eru þar að leiðandi einnig óbreyttir og verða því áfram 12,25% fyrir tímabilið 1. - 30. apríl 2019.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir haldast einnig óbreyttir og verða því áfram sem hér segir fyrir tímabilið 1. – 30. apríl 2019:
• Vextir óverðtryggðra útlána 6,00%
• Vextir verðtryggðra útlána 3,55%
• Vextir af skaðabótakröfum 4,00%

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 03/2019

Til baka