logo-for-printing

29. janúar 2018

Fundur fjármálastöðugleikaráðs

Bygging Seðlabanka Íslands og Esjan á bakvið

Fyrsti fundur fjármálastöðugleikaráðs á árinu 2018 var haldinn fimmtudaginn 18. janúar sl. í fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Fjallað var um áhættu í fjármálakerfinu og horfur í þjóðarbúskapnum.
Ráðið beindi þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins 19. desember sl. að halda sveiflujöfnunarauka á innlendar áhættuskuldbindingar allra fjármálafyrirtækja óbreyttum í 1,25%. Fjármálasveiflan hefur haldið áfram að rísa með svipuðum hraða og áætlað var á síðasta fundi ráðsins. Þess má vænta að ráðið muni leggja til að uppbyggingu sveiflujöfnunaraukans verði haldið áfram á næstu misserum í takt við ris fjármálasveiflunnar.

Næsti fundur fjármálastöðugleikaráðs verður haldinn 14. mars nk.

Nánari upplýsingar um fundinn er að finna á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Til baka