logo-for-printing

05. maí 2015

Yfirlýsing Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands

Bygging Seðlabanka Íslands

Sameiginleg yfirlýsing Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands vegna birtingar á trúnaðarupplýsingum í ritinu Fjármálastöðugleiki:

Í ritinu Fjármálastöðugleiki, sem Seðlabanki Íslands gaf út hinn 22. apríl 2015, birtust upplýsingar um ársreikning Sparisjóðs Norðurlands fyrir árið 2014 sem ekki voru orðnar opinberar. Við útgáfu ritsins er þeirri reglu fylgt að upplýsingar er varða einstaka aðila séu einungis birtar hafi þær þegar verið gerðar opinberar eða leyfi fengist fyrir birtingunni hjá viðkomandi aðila. Birting upplýsinganna voru því mistök sem stofnanirnar harma, enda leggja þær ríka áherslu á vandaða meðferð gagna frá eftirlitsskyldum aðilum sem stofnanirnar hafa fengið afhentar í trúnaði. Til þess að fyrirbyggja að slík mistök eigi sér stað í framtíðinni munu stofnanirnar í sameiningu fara yfir og gera viðeigandi endurbætur á verkferlum.

Til baka