logo-for-printing

13. apríl 2015

Fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis mánudaginn 13. apríl

Vinnuferð peningastefnunefndar um Suðurnes haustið 2014 með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis

Næsti fundur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis verður haldinn næstkomandi mánudag, 13. apríl. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skal gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári. Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Gylfi Zoëga prófessor í hagfræði og peningastefnunefndarmaður og Rannveig Sigurðardóttir ritari peningastefnunefndar mæta á fundinn.

Þetta verður tíundi fundur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands með þingnefndum Alþingis. Sjá hér yfirlit yfir fundina

Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða skuli efni skýrslunnar í þeirri þingnefnd sem þingforseti ákveður. Í upphafi fundaði peningastefnunefnd með þremur nefndum; efnahags- og skattanefnd, viðskiptanefnd og fjárlaganefnd. Eftir breytingar á lögum um þingsköp Alþingis hefur efnahags- og viðskiptanefnd verið falið að fjalla um skýrslu peningastefnunefndar.

Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, Gylfi Zoëga prófessor í hagfræði og peningastefnunefndarmaður og Rannveig Sigurðardóttir ritari peningastefnunefndar mæta á fundinn mánudag.

Síðasti fundur peningastefnunefndar með efnahags- og viðskiptanefnd var 17. nóvember 2014. Beina útsendingu frá þeim fundi má finna hér. Inngangsorð seðlabankastjóra frá fundinum er að finna hér

Meðfylgjandi mynd var tekin í vinnufundarferð peningastefnunefndar um Suðurnes síðastliðið haust er hún kynnti sér meðal annars atvinnulíf og opinbera starfsemi á svæðinu.

Til baka