logo-for-printing

30. mars 2015

Efni frá málstofunni í dag um fjármálakreppur á Íslandi 1875-2013

Bygging Seðlabanka Íslands

Efni frá málstofunni er nú aðgengileg hér: 

Við höfum séð þetta allt áður. Saga fjármálakreppa á Íslandi 1875-2013

Sjá einnig: The long history of financial boom-bust cycles in Iceland - Part I: Financial crises

Stutt um efnið:

Fjármálakreppan á Íslandi árið 2008 var gríðarlega umfangsmikil og hafði mikil efnahagsleg áhrif. Hún var hins vegar ekki fyrsta fjármálakreppan sem skollið hefur á hér á landi. Á síðustu einni og hálfri öld hafa orðið yfir tuttugu fjármálakreppur hér á landi af ólíkum tegundum. Þær hafa gjarnan fylgst að og við berum því kennsl á sex stórar og „fjölþættar“ fjármálakreppur sem skollið hafa á á u.þ.b. fimmtán ára fresti. Frekari greining á þessum sex stóru kreppum sýnir svo ekki verður um villst að þegar kemur að fjármálakreppum þá „höfum við séð þetta allt áður“.

Niðurstöður okkar sýna t.d. að efnahagssamdráttur í kjölfar fjármálakreppa er að jafnaði um tvöfalt dýpri og varir hátt í tvöfalt lengur en í kjölfar hefðbundins efnahagssamdráttar. Þær benda einnig til þess að fimm af þessum sex fjármálakreppum eiga sér skýra samsvörun í alþjóðlegum fjármálakreppum sem skollið hafa á á sama tíma og að tvö- til þrefalt meiri hætta er á fjármálakreppu hér á landi á tímum alvarlegrar alþjóðlegrar fjármálakreppu.

Frummælandi var Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands en auk hans hafa þeir Bjarni G. Einarsson, Kristófer Gunnlaugsson og Þorvarður Tjörvi Ólafsson unnið að rannsókninni.

Málstofan hófst klukkan 15.00 í dag 30. mars 2015, og var haldin í fundarsalnum Sölvhóli í byggingu Seðlabankans við Kalkofnsveg í Reykjavík.

Sjá nánari upplýsingar um málstofur hér.

 

Til baka