logo-for-printing

13. mars 2015

Framkvæmdastjórn AGS ræddi um íslensk efnahagsmál

Bygging Seðlabanka Íslands

Hinn 9. mars síðastliðinn fór fram reglubundin umræða í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um stöðu og horfur í efnahagslífi á Íslandi í samræmi við fjórðu grein stofnsáttmála AGS (e. 2014 Article IV Consultation). Jafnframt var rætt um mál sem varða eftirfylgni við efnahagsáætlun AGS og íslenskra stjórnvalda sem lauk í ágúst 2011 (e. Post-Program Monitoring Discussions).

Umræða í framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var með hliðsjón af skýrslu sendinefndar á vegum sjóðsins sem var á Íslandi til viðræðna við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila í desember síðastliðnum.

Sjóðurinn birtir í dag fréttatilkynningu á heimasíðu sinni þar sem greint er frá umræðunni. Einnig var birt viðtal við Peter Dohlman, yfirmann sendinefndar AGS, í rafrænu riti sjóðsins, IMF Survey Magazine, þar sem fjallað er um AGS og Ísland.

Sjá hér að neðan gögn sem tengjast þessari umræðu AGS um Ísland:

Iceland - Staff Report for the 2014 Article IV Consultation and Fifth Post-Program Monitoring Discussions.pdf    

Iceland Selected Issues, March 2015  

Viðtal við Peter Dohlman, yfirmann sendinefndar AGS fyrir Ísland í IMF Survey Magazine

Sjá einnig fréttatilkynningu á vef Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Hér

 

Til baka