logo-for-printing

19. desember 2014

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2014

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum.

Grunnur dráttarvaxta lækkaði um 0,50 prósentur við síðustu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Íslands hinn 10. desember sl. sbr. tilkynningu bankastjórnar þar um sama dag.
Dráttarvextir lækka því að sama skapi um 0,50 prósentur frá og með 1. janúar nk. og verða 12,25% fyrir tímabilið 1. - 31. janúar 2015.

Aðrir vextir sem Seðlabanki Íslands tilkynnir breytast hinsvegar ekki og verða áfram fyrir tímabilið 1. – 31. janúar 2015 sem hér segir;

 • Vextir óverðtryggðra útlána 6,50% - (óbreyttir)
 • Vextir verðtryggðra útlána 3,50% - (óbreyttir)
 • Vextir af skaðabótakröfum 4,33% - (óbreyttir)

Tilkynning um dráttarvexti og vexti af peningakröfum nr. 12/2014 (pdf)

Til baka