logo-for-printing

05. desember 2014

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands endurnýja samstarfssamning sinn

Bygging Seðlabanka Íslands

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning sinn og var hann undirritaður hinn 1. desember síðastliðinn. Við sama tækifæri var einnig undirritað samkomulag Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins um framkvæmd lausafjáreftirlits lánastofnana.

Markmið samstarfssamningsins er að formbinda samvinnu og upplýsingaskipti stofnananna og samhæfa viðbrögð við kerfisáhættu á vettvangi fjármálastöðugleikaráðs. Í samningnum segir að til að ná því markmiði sé nauðsynlegt að samvinna stofnananna, m.a. á vettvangi kerfisáhættunefndar og fjármálastöðugleikaráðs, miði að því að greina og meta kerfisáhættu. Þá skuli greining á fjármálastöðugleika draga upp greinargóða mynd af styrkleika og veikleika fjármálakerfisins. Greining á stöðu þýðingarmikilla aðila á fjármálamarkaði á enn fremur að draga upp skýra mynd af viðnámsþrótti þeirra. Til að leggja mat á ástand og horfur í fjármálakerfinu og kerfisáhættu hafa stofnanirnar sett á laggirnar fimm sameiginlega áhættumatshópa sem starfa árið um kring. Áhættumatshóparnir eru útlánaáhættuhópur, markaðsáhættuhópur, lausafjár- og fjármögnunaráhættuhópur, áhættuhópur um fjármálainniviði og svonefndur míkró-makróhópur.

Við upplýsingaöflun frá eftirlitskyldum aðilum er leitast við að hafa samvinnu um þróun skýrslna. Lögð er áhersla á að upplýsingaskipti milli stofnananna séu tímanleg og reglubundin og miðlað á skilvirkan og öruggan hátt.

Mælt er fyrir um að Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands skuli gera með sér samstarfssamning, annars vegar í 35. gr. laga um Seðlabanka Íslands nr. 36/2001 og hins vegar í 15. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998.


Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

Nr. 42/2014
5. desember 2014




Til baka