logo-for-printing

24. september 2014

Samþykkt bankaráðs 23. september 2014 um færslu málskostnaðar seðlabankastjóra

Bygging Seðlabanka Íslands

Á fundi bankaráðs Seðlabanka Íslands 23. september 2014 var eftirfarandi samþykkt: 

„Bankaráð hefur haft til umfjöllunar hvort greiðsla málskostnaðar Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, vegna dómsmáls sem hann rak varðandi framkvæmd úrskurðar kjararáðs frá 23. febrúar 2010 teljist rekstrarkostnaður bankans.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá 30 júní sl. kemur m.a. fram að hvorki lög um Seðlabanka Íslands né reglugerðir gera ráð fyrir að formaður bankaráðsins hafi sjálfstæðar valdheimildir. Bankaráðið er fjölskipað stjórnvald og þarf því að bera ákvarðanir um útgjöld, sem falla undir verksvið ráðsins, upp í bankaráðinu til formlegrar afgreiðslu. Þá kemur fram í úttektinni að fyrrum formaður hafði ekki formlega heimild bankaráðs þess tíma sem heimilaði greiðslu málskostnaðar seðlabankastjóra vegna fyrrgreindrar málsóknar.

Í ljósi efnisatriða málsins er það niðurstaða meirihluta bankaráðs að heimila ekki nú greiðslurnar með sérstakri ályktun. Bankaráðið mun því ekki samþykkja að gera málskostnaðinn að rekstrarkostnaði bankans.

Í bréfi dagsettu 11. júlí síðastliðinn til bankaráðs lýsti seðlabankastjóri því yfir að ef ákvörðun bankaráðs yrði þessi þá myndi hann greiða Seðlabankanum þennan útlagða kostnað. Hann mun því í samræmi við ofangreinda ákvörðun bankaráðs greiða bankanum andvirði málskostnaðar hans. Telur bankaráðið því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þetta álitamál.“

Í tilefni af samþykkt bankaráðs óskaði minnihluti ráðsins eftir sérstakri bókun sem hér fylgir:

Bókun minnihluta bankaráðs.pdf

Bréf seðlabankastjóra til bankaráðs Seðlabankans 11. júlí 2014 fylgir hér með:

Bréf bankastjóra til bankaráðs 1172014.pdf

Fylgiskjal með bréfi seðlabankastjóra: Framkvæmd á úrskurðum kjararáðs 23. febrúar 2010.pdf (Einnig aðgengilegt í bréfi að ofan).

  

Bréf Ríkisendurskoðunar frá 30. júní 2014:

Bréf frá Ríkisendurskoðun til bankaráðs Seðlabanka Íslands 30. júní 2014.pdf

 

 

Til baka