logo-for-printing

02. september 2014

Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2014 - leiðréttar tölur

Bygging Seðlabanka Íslands

Seðlabanki Íslands birtir hér að nýju frétt um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2014 þar sem villa slæddist í frétt sem birt var fyrir stundu.

Þar er um að ræða tölur um viðskiptajöfnuð án áhrifa innlánsstofnana. Þær eru leiðréttar í meðfylgjandi endurbirtingu:

Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2014 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Seðlabanki Íslands hefur tekið í notkun nýja staðla fyrir hagtölur greiðslujafnaðar og erlenda stöðu þjóðarbúsins og er þetta fyrsta birtingin samkvæmt þeim. Breytingar vegna nýrra staðla varða einna helst vöru og þjónustu, þáttatekjur og rekstrarframlög, beina fjárfestingu, sértæk félög og lífeyris- og tryggingasjóði. Nánar er greint frá breytingunum í Upplýsingariti Seðlabankans sem kemur út í dag.

Viðskiptajöfnuður mældist hagstæður um 2,9 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 5,6 ma.kr. óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður sem nemur 18,9 ma.kr. en þjónustujöfnuður hagstæður um 34,2 ma.kr. Jöfnuður frumþáttatekna mældist neikvæður um 8,9 ma.kr. og rekstrarframlög voru neikvæð sem nemur 3,4 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var hagstæður um 12,8 ma.kr. samanborið við 2,9 ma.kr. fjórðunginn á undan.

Sjá hér fréttina í heild sinni: Greiðslujöfnuður og erlend staða þjóðarbúsins á öðrum ársfjórðungi 2014.pdf

 

Nr. 29/2014
2. september 2014


Til baka