logo-for-printing

03. júní 2014

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fyrsta ársfjórðungi 2014

Bygging Seðlabanka Íslands
Á vef Seðlabanka Íslands hafa nú verið birt bráðabirgðayfirlit um greiðslujöfnuð við útlönd á fyrsta ársfjórðungi 2014 og um stöðu þjóðarbúsins í lok ársfjórðungsins.

Viðskiptajöfnuður mældist óhagstæður um 12,1 ma.kr. á ársfjórðungnum samanborið við 11,2 ma.kr. hagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan. Afgangur á vöruskiptum við útlönd nam 9,3 ma.kr. en þjónustujöfnuður var jákvæður um 0,8 ma.kr. Jöfnuður þáttatekna  mældist neikvæður um 22,2 ma.kr. Viðskiptajöfnuður án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 3,5 ma.kr. samanborið við hagstæðan um 20,1 ma.kr. fjórðunginn á undan.

Sjá hér í heild frétt nr. 16/2014 um greiðslujöfnuð og erlenda stöðu á fyrsta ársfjórðungi 2014: 

Greiðslujöfnuður við útlönd og erlend staða þjóðarbúsins á fyrsta ársfjórðungi 2014.pdf

Til baka