logo-for-printing

27. mars 2014

Ársfundur Seðlabanka Íslands 2014

Bygging Seðlabanka Íslands
Í dag verður ársfundur Seðlabanka Íslands haldinn. Þar verða reikningar bankans lagðir fram en auk þess munu Ólöf Nordal, formaður bankaráðs, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri flytja ræður. Ársskýrsla bankans fyrir árið 2013, sem inniheldur reikningana, verður birt á vef bankans eftir klukkan 16 í dag ásamt þeim ræðum sem fluttar verða á ársfundinum.

Hér má skoða ársskýrslur síðustu ára: Ársskýrsla Seðlabanka Íslands.

Hér er hægt að skoða ræður, greinar og erindi sem hafa verið birt í tengslum við starfsemi Seðlabanka Íslands.

Til baka