logo-for-printing

07. febrúar 2014

Fitch Ratings staðfestir BBB lánshæfiseinkunn Ríkissjóðs Íslands og segir horfurnar stöðugar

Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánhæfisseinkunnir Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB og BBB+ í innlendri mynt. Einkunnir fyrir skuldabréf (e. senior unsecured bonds) í erlendri og innlendri mynt eru staðfestar sem BBB og BBB+. Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar. Landseinkunnin (e. Country Ceiling) er staðfest sem BBB og jafnframt er staðfest lánshæfismatið F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt.


Hér má nálgast fréttatilkynningu Fitch Ratings.
Til baka