logo-for-printing

14. desember 2012

Auglýsing eftir umsóknum um styrk

Auglýst er eftir umsóknum um styrk sem tengdur er nafni Jóhannesar Nordals.

Tilgangur með styrknum er að styðja viðleitni einstaklinga sem miðar að því að varðveita menningarverðmæti sem núverandi kynslóð hefur fengið í arf.

Upplýsingar um umsóknarferilinn og mat á umsóknum eru á vef Seðlabanka Íslands.

Umsóknir skulu sendar skrifstofu bankastjóra Seðlabanka Íslands fyrir 25. janúar 2013. Fjárhæð styrksins nemur 2.000.000 kr. og fer úthlutun fram 5. apríl 2013. Eyðublöð fyrir umsóknir eru aðgengileg á vef Seðlabanka Íslands og í afgreiðslu Seðlabankans.

Nánari upplýsingar veitir Jón Sigurgeirsson framkvæmdastjóri á skrifstofu seðlabankastjóra. Símanúmerið er 569 9600.

Reglur um úthlutun styrks


Umsóknareyðublað vegna úthlutunar
Til baka