logo-for-printing

02. október 2012

Kynning á vaxtaákvörðun

Vaxtaákvörðun peningastefnunefndar verður kynnt með tilkynningu klukkan 8.55 í fyrramálið. Stuttu síðar, eða klukkan 10:30, hefst vefútsending þar sem færð verða rök fyrir ákvörðun peningastefnunefndar.

Þar munu Már Guðmundsson seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og fulltrúi í peningastefnunefnd kynna rökin fyrir ákvörðun peningastefnunefndar.

Vefútsendinguna verður hægt að nálgast hér: Vefútsending 3. október 2012

Seðlabankinn minnir sem fyrr á að hann getur ekki tekið ábyrgð á mögulegu rofi á útsendingu vegna tæknigalla eða bilana.

 

Til baka