logo-for-printing

12. júlí 2011

Niðurstaða gjaldeyrisútboðs

Hinn 28. júní 2011 bauðst Seðlabanki Íslands til að kaupa krónur gegn greiðslu í reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðið fór fram kl. 11:00 í dag og er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum, samanber áætlun Seðlabankans um losun gjaldeyrishafta frá 25. mars 2011.

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð miðast við þau gengi sem lögð voru inn. Alls bárust tilboð að fjárhæð 52.234.000.000 kr. Tilboðum var tekið fyrir 14.933.240.000 kr. og var lágmarksverð samþykktra tilboða 215,00 kr. fyrir evru og var meðalverð samþykktra tilboða 216,33 kr. fyrir evru. Tilboðum sem voru yfir lágmarksverði var tekið að fullu, en tilboð sem voru jafnhá lágmarksverði voru samþykkt hlutfallslega miðað við hlutfallið 44,0%.

Nánari upplýsingar veitir Már Guðmundsson seðlabankastjóri í síma 569-9600.

 

Nr. 20/2011
12. júlí 2011

Til baka