logo-for-printing

11. febrúar 2011

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands

Gjaldeyrisforði Seðlabanka Íslands fyrir janúar 2011 var birtur í dag á vef Seðlabanka Íslands. Gjaldeyrisforðinn nam 732,7 ma.kr. í lok janúar og jókst um 65,7 ma.kr. milli mánaða.

Aukninguna má að mestu rekja til seðla og innstæðna í erlendum bönkum. Innstæður í erlendum bönkum jukust um 66,8 ma.kr., þar af jukust seðlar og innstæður í öðrum seðlabönkum, Alþjóðagreiðslubankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum um 21,5 ma.kr.

Sjá nánar:

Gjaldeyrisforði og tengdir liðir
Til baka